Kommentar |
Í námskeiðinu æfum við talað mál og algeng orðasambönd og byggjum upp orðaforða. Við tölum um hversdagslega hluti eins og veðrið en einnig um áhugamál, s.s. föt, kvikmyndir, bækur og tónlist eða mat, ferðalög og fleira. Við notum verkefni af BRAGA og aðrar vefsíður. Allir sem hafa lokið Íslensku 2, eða hafa sambærilegan grunn í íslensku, geta tekið þátt. |